|
17.02.2008 10:52:56 / thrudhildur
Nú var ég hlessa, bloggið breytt og ég lost.....nema hvað, ætlaði að segja sögu af henni Bjútí....hún lenti í lífsháska í gær....asnaðist út þótt ég bannaði henni það........Gríma border collie tók hana til bæna og er hún í losti síðan.....kom inn blaut og blóðug......þaut upp á eldhúsinnréttingu og húkti þar lengi........starði með æði í svip út um gluggann......greyið...
»
11.01.2008 18:20:34 / thrudhildur
Sögur úr sveitinni hét bók sem ég las mikið hér áður fyrr þegar dætur mínar, fullvaxta, voru litlar. Í þessari bók var sagt frá ýmsum óhöppum í sveitinni og datt mér þessi bók í hug í dag þegar ég var að fara að gefa rollunum. Þurfti að taka rúllu inn í hlöðu og skera hana með heyskera nb. rafmagns. Þá þarf að standa uppi á rúllunni og skera niður í hana miðja. Þetta getur verið hið mesta puð, fyrst að komast upp á rúlluna, halda þar jafnvægi og skera í miðjuna án þess að skera tærnar af. Oft er maður nú við það að detta þar sem rúllan á það til að gliðna þegar skorið er djúpt, sem einmitt gerðist í dag. Gliðnaði hún svo snögglega í sundur að við Heyskeri misstum fótanna og ég vissi ekki fyrr en ég lá næstum hálsbrotin á hlöðugólfinu. Fæturnir sneru beint upp og ég bókstaflega lá á öðru eyranu. Ef ég hefði ekki verið svona létt J þá hefði getað farið illa skal ég segja ykkur. Hundarnir vissu ekki hvort þeir ættu að gráta eða hlæja og ég var heppin að bóndinn var hvergi nærri. Svona var nú þessi saga.
»
27.12.2007 02:50:09 / thrudhildur
Það er undarlegt hvað maður á auðvelt með að gleyma. Þurfti að fara inn á bloggsíðuna mína í gegnum börnin til að geta bloggað því það er svo langt síðan að ég var hér síðast að ég var alveg búin að gleyma þessu. Annars, gleðilega hátíð til ykkar sem lesið bloggið. Þessi jól voru svolítið skrýtin, ekkert bakað og þrifin í lágmarki, er þetta ekki merki um að aldurinn sé farinn segja til sín eða maður er bara orðinn eitthvað linari við sjálfan sig en hér áður, eða kannski var tíminn bara af skornum skammti. Ég held að ég hefði ekki trúað því ef einhver hefði sagt við mig svona í nóvember að ég myndi ekki hafa tíma til að baka fyrir jólin. Svona var nú það samt, og jólin komu. Alveg jafn gott að borða og alveg jafn gaman að vera með fjölskyldunni. Bætti samt úr þessum ómyndarskap í dag og þrusaði einni smákökusort í ofninn og tveimur tertum áður en ég fór í fjárhúsin til að stússast við fénaðinn. Hrútarnir komnir í essið sitt ef svo má segja, alla vega sumir. Aðrir hnoðast bara og hafa fengið uppnefnið "hnoðmör" ef illa gengur. Svona gegnur það nú í sveitinni.
»
15.12.2007 01:14:23 / thrudhildur
Jóla...jóla... hef lítinn tíma til jólaundirbúnings þessa dagana. Er nokkuð hægt að undirbúa þau í annan tíma Já ég er að hugsa um að taka tilboði frumburðarins og gera laufabrauðið 22. des. Líst vel á það að hafa alla með. Hlakka til. Bloggumst.
»
01.12.2007 00:47:15 / thrudhildur
Já sá 48. afmælisdagurinn er á enda runninn og var hann ótrúlega skemmtilegur. Hátíð var í skólanum í tilefni 1. des og tókst með mestu ágætum. Fór heim og eldaði hangiket svona til að prófa framleiðsluna 2007. Í ár er það milt, bæði af reyk og salti þannig að engum ætti að verða meint af því. Fékk svo gesti í mat og kvöldkaffi sem komu náttúrulega færandi hendi þrátt fyrir hávær mótmæli. Takk, takk þið sem munduð eftir mér og líka þeir sem reyndu að hringja. Þetta var ljúft.
»
27.11.2007 20:52:50 / thrudhildur
Nú er Orion karlinn farinn að fikra sig upp á himinhvolfið og alltaf jafn gaman að nikka hann þegar stjörnubjart er úti. Mér finnst alltaf eins og ég sé að hitta kunningja þegar ég sé til hans. Hefurðu séð hann nýlega?
»
26.11.2007 00:20:18 / thrudhildur
Loksins búin að mála herbergi sonarins, lauk því á afmælisdaginn hans og flutti hann þá inn í það. Ég byrjaði í ágúst eða byrjun september þegar miðjubarnið flutti til Akureyrar en einhverra hluta vegna hefur verkefnið dregist fram úr hófi. Í fyrsta lagi finnst mér frekar leiðinlegt að mála, og í öðru lagi þá hafa flestir dagar verið fráteknir í annað. Þetta tókst samt að lokum og er núna voða fínt hjá stráknum.
»
22.11.2007 20:37:45 / thrudhildur
Um daginn þegar ég fór til Sverige þá rak ég augun í skilti á Keflavíkurflugvelli og sá að þar stóð: Lausagangur bifreiða bannaður. Þar sem ég var nú nýstigin úr úr fjárhúsunum og þekki vel lausagöngu búfjár sá ég fyrir mér bíla sem eigendur hefðu skilið eftir á hingað og þangað og þeir væru bara á rúntinum um bílaplanið á meðan eigendurnir væru í útlöndum. Þetta kitlaði að sjálfsögðu skoptaugarnar og skemmti ég mér lengi yfir þessari sýn minni. Sjáið þið það ekki líka. P.S. Takk fyrir ráðið Ingimaría mín.
»
21.11.2007 21:23:13 / thrudhildur
Úr því að síðasta blogg tókst held ég náttúrulega áfram. Á morgun verður Hjörtur 12 ára, ótrúlegt en satt. Jafn gamall og ég var þegar við fluttum í Eiða. Vorum í fjárhúsunum áðan og fékk hann að velja sér gimbur í afmælisgjöf. Hann hefur lengi langað í sæmilega ættaðan grip, ekki verra ef hann er undan hrút af sæðingarstöð. En heimaættuð gimbur varð fyrir valinu í þetta sinn.
»
21.11.2007 20:59:59 / thrudhildur
Ég er búin að hamast við að blogga undanfarið en einhverra hluta vegna kemur ekkert inn á síðuna. Þannig að nú er illt í efni. Hvað gera bændur nú? Ef þessi færsla heppnast myndi ég þiggja góð ráð frá ykkur bloggséníum.
»
05.11.2007 21:28:47 / thrudhildur
Jæja, þá er bara einn dagur eftir þar til við kennarar við
Grunnskólann Egilsstöðum og Eiðum förum til Sverige að skoða skóla.
Hlakka mikið til. Vetrarfrí í skólanum í dag, morgun og hinn en
fimmtudagur og föstudagur eru starfsdagar hjá okkur sem við nýtum
m.a. í þessa ferð. Nemendur njóta góðs af þessu fríi og safna
vonandi kröftum fyrir jólamánuðinn sem er ekki svo langt undan.
Komum heim á sunnudag, vonandi uppfull af hugmyndum úr útlandinu
svo kennslan verður sennilega með sænsku ívafi það sem eftir
verður af skólaárinu. Hér væri náttúrulega næstum því við hæfi að
segja "Heia Norge"
Fríða mín, takk fyrir innlitið á bloggið og gangi þér vel
með námið.
»
03.11.2007 11:34:42 / thrudhildur
Kjöt er málið þessa dagana, annað hvort lifandi eða lífvana. Var að setja lærin í saltpækil svo hægt sé að reykja þau fyrir jólin og frampartarnir bíða mín og hnífsins með stóiskri ró á frystikistunni. Það er svo undarlegt þetta með kjötið. Var í Bónus í gær að og rak augun í pínu litla hryggjarbita sem að mínu mati væru flokkaðir í flokk lítilla og horaðra lamba. Ekki til fitututla á þeim og hryggjarliðirnir sköguðu upp úr hryggnum. Hryggirnir teknir í tvennt til að það væri ekki eins áberandi hvað þeir væru veimiltítlulegir. Fyrir þann flokk fengi ég á milli 200 og 300 kr/kg. hjá sláturhúsinu en út úr Bónus er kílóverðið nær 1300 kr/kg. Ég fæ borgað fyrir kjötið eftir því í hvaða flokki það lendir í kjötskoðun sláturhússins en svo þegar þetta sama kjöt er komið í búðirnar þá virðist kílóverðið vera það sama hvort sem um er að ræða E-U-R-O-eða P flokk, (EUROP) þar sem E er vöðvamesta kjötið og besta verð fæst fyrir en P er flokkur sem fæstir bændur vilja sjá á vigtarseðli sínum. Hver flokkur er svo flokkaður í 1-5 eftir fitumagni. Þannig að DE1 er besti flokkurinn (D=dilkur), góðir vöðvar og lítil fita. 1. flokkur er ekki til lengur sem slíkur allavega í tilfellum sem að bændum snýr. Neytandinn kaupir bara 1. flokk og veit svo ekkert meir um hvað hann er að kaupa. Veit ekki til hvers ég er að taka þátt í að framleiða lambakjöt og sjá svo horrenglur á uppsprengdu verði. Skil þetta ekki alveg. Held ég verði að fara að leggjast í enn meiri verðkannanir. Ætli ég þurfi að gera boð á undan mér
»
03.11.2007 00:54:19 / thrudhildur
Já nú er að skrifa eitthvað gáfulegt segir frumburðurinn og hefst nú bloggið. Nú eru veturnætur liðnar og vetur genginn í garð. Dettur alltaf gamli tíminn í hug þegar ég heyri talað um veturnætur. Veturnætur eru síðustu nætur fyrir vetur. Sumarið hefst alltaf á fimmtudegi ekki satt og endar því væntanlega á miðvikudegi. Þar sem fyrsta vetrardag ber upp á fyrsta laugardag eftir að sumri lýkur þá verða þarna tveir sólarhringar í e.k. tómarúmi tímans en þarna eru sem sagt veturnætur komnar. Vissirðu þetta?? Skrýtið hvað það er gaman að reyna að ímynda sér hvernig var í gamla daga, hef kannski verið ennþá meiri sveitakerling í öðru lífi, að rembast við að ljúka við sláturgerð fyrir veturnætur svo hægt væri að fagna vetri ef honum var þá fagnað á annað borð.
»
31.10.2007 22:57:24 / thrudhildur
Haldiði ekki að hann Hjörtur litli ljúfur hafi búið til bloggsíðu
fyrir mig, ákveðinn í að mamma gamla skyldi nú blogga.
»
29.10.2007 20:26:06 / thrudhildur
Loksins hef ég fengið mína eigin bloggsíðu og ég vona að hún verði góð. Ég ætla að blogga annað veifið kv.Þrúða
»
|